Kvistur og þaksvalir. Gera timburpall, hjólageymslu og sorpskýli
Miðstræti 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 849
10. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. desember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að gera kvist og þaksvalir á austurhlið þriðju hæðar, stækka kvisti og sameina rými á annarri hæð, gera dyr út úr eldhúsi fyrstu hæðar að palli og tröppum til austurs og nýjar kjallaratröppur á austurhlið, bætt við hjólageymslu og timburpalli í suðaustur horni lóðar og sorpskýli komið fyrir við lóðarmörk til norðurs við hús á lóð nr. 5 við Miðstræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021.
Stækkun er: 5 ferm., 18,1 rúmm. Erindi fylgir yfirlitsmynd götureits dagsett, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 14. september 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. september 2021. Samþykki eigenda aðliggjandi lóða dags. 25. nóvember 2021. Gjald kr.12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101944 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021767