Stækka svalir 3.hæð - gluggi 2.hæð o.fl.
Bárugata 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 834
27. ágúst, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. ágúst 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að stækka svalir á 3. hæð, bæta við glugga á austurhlið 2. hæðar, og minnka stigahús til að stækka íbúð 0201 auk ýmissa smávægilegra áður gerðra breytinga á innra skipulagi í íbúðarhúsi, og sameina í einn alla matshluta á lóð nr. 15 við Bárugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. júlí 2021, bréf frá hönnuði dags. 3. ágúst 2021 og yfirlit breytinga. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Bárugötu 13 og Öldugötu 12 og 14.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100559 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006865