Stækka svalir 3.hæð - gluggi 2.hæð o.fl.
Bárugata 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 832
13. ágúst, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að stækka svalir á 3. hæð, bæta við glugga á austurhlið 2. hæðar, og minnka stigahús til að stækka íbúð 0201 auk ýmissa smávægilegra áður gerðra breytinga á innra skipulagi í íbúðarhúsi, og sameina í einn alla matshluta á lóð nr. 15 við Bárugötu.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. júli 2021, bréf frá hönnuði dags. 3. ágúst 2021 og yfirlit breytinga. Gjald kr. 12.100
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100559 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006865