breyting á deiliskipulagi
Lambhagavegur 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 875
30. júní, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Íslenska fjallatrukkafélagsins ehf. dags. 14. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, Halla vegna lóðarinnar nr. 10 við Lambhagaveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur minnkar lítillega og færist til innan lóðar, hæð byggingar hækkar úr 8 m í 11 m auk þess að heimilt er að reisa létta inndregna hæð á hluta byggingar, samkvæmt uppdr. Arkþing/Nordic dags. 7. júlí 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 27. maí 2022 til og með 27. júní 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingu: Veitur dags. 10. júní 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

113 Reykjavík
Landnúmer: 211673 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097857