breyting á deiliskipulagi
Teigagerði 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 879
11. ágúst, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Úti og inni arkitekta dags. 20. apríl 2022 ásamt minnisblaði dags. 13. apríl 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 8 við Teigagerði. í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir viðbyggingu, á jarðhæð, við suðaustur kverk hússins, ásamt því að upprunalegir kvistir á húsinu eru rýmkaðir sem leiða aukins byggingamagns, samkvæmt uppdr. Úti og inni arkitekta dags. 6. apríl 2022. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar. Lagður fram undirskriftalisti með samþykki nágranna, ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 23. júní 2022 til og með 21. júlí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

108 Reykjavík
Landnúmer: 108077 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023547