Endurbyggja bílskúr með breyttri notkun - geymsla og vinnustofa
Nökkvavogur 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 860
11. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. febrúar 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. febrúar 2022 þar sótt er um leyfi til þess að rífa ónýtan bílskúr, mhl. 02, og byggja á sama grunni, vinnustofu og geymslu, mhl.02, sem tilheyrir íbúð 0101 í tvíbýlishúsi, mhl.01, á lóð nr. 12 við Nökkvavog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. mars 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. mars 2022, samþykkt.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105412 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024278