Breyta glugga í rennihurð og koma fyrir palli og geymslu
Hringbraut 102
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 877
14. júlí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta glugga á norðurgafli í rennihurð og byggja þar svalir með tröppu niður í garð með hjóla- og sorpgeymslu undir á húsi á lóð nr. 102 við Hringbraut, samkvæmt uppdr. dags. 3. júní 2021. Erindi var grenndarkynnt frá 13. júní 2022 til og með 12. júlí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100780 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020673