Breyting á stigagangi - bætt við svölum
1">Ásvallagata 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. september 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi fyrir svölum á 2. hæð suðurhliðar, gera nýja hurð í stigahús, breyta innra skipulagi og koma fyrir nýjum þakgluggum í risi á húsi nr. 5 á lóð nr. 5 við Ásvallagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Minnkun vegna inndreginna svala í risi: 3,1 ferm. Stærð eftir breytingu: 337,2 ferm. , 940,1 rúmm. Erindi fylgir samþykki eiganda dags. 14. júní 2021 og yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 8. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2021. Gjald kr.12.100.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 3, 7 og Brávallagötu 18.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101280 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007319