Breyting á stigagangi - bætt við svölum
1">Ásvallagata 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 839
1. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi fyrir svölum á 2. hæð suðurhliðar, gera nýja hurð í stigahús, breyta innra skipulagi og koma fyrir nýjum þakgluggum í risi á húsi nr. 5 á lóð nr. 5 við Ásvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 21. september 2021 til og með 19. október 2021 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst þann 1. október 2021 er erindi nú lagt fram að nýju.
Minnkun vegna inndreginna svala í risi: 3,1 ferm. Stærð eftir breytingu: 337,2 ferm. , 940,1 rúmm. Erindi fylgir samþykki eiganda dags. 14. júní 2021 og yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 8. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2021. Gjald kr.12.100.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101280 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007319