1-3 - Fjölbýlishús - erindi BN057880 dregið til baka
Vatnsholt 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 811
5. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. febrúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvö þriggja hæða fjölbýlishús með 51 íbúð með opnum svalagangi ásamt frístæðum hjóla- og sorpgeymslum fyrir hvort hús, að mestu úr forsteyptum samlokueiningum, að hluta klædd utan með timburklæðningum og verða nr. 1 og nr. 3 á lóð nr. 1 við Vatnsholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021.
Jafnframt er erindi BN057880 dregið til baka. Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 30. janúar 2021 og hljóðvistarskýrsla frá Hljóðtæknilausnir, útáfa 5, dags. 7. desember 2020. Stærð, mhl. 01, A+B-rými: 2.046,9 ferm., 5.931,7 rúmm. Mhl. 02, A+B-rými: 2.275,3 ferm., 6.570,9 rúmm.Mhl. 03: 70,6 ferm., 190,4 rúmm. Mhl. 04: 56,5 ferm., 159,7 rúmm. Samtals A+B-rými: 4.449,3 ferm., 12.852,7 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021 samþykkt.