Svalir 1. 2. og 3.hæð
Ásvallagata 31
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að gera svalir á suðurhlið 1. 2. og 3. hæðar og síkka glugga til að koma fyrir svalahurðum á íbúðarhús á lóð nr. 31 við Ásvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 29 og 33, Brávallagötu 42, 44 og 46.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101261 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007346