breyting á deiliskipulagi
Jöfursbás 9A, 9B, 9C og 9D
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. mars 2021 var lögð fram umsókn Júlíusar Þórs Júlíussonar dags. 25. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gufuness, áfanga 1, vegna lóðarinnar nr. 9 við Jöfursbás. Í breytingunni felst að svalir megi ganga 160 cm út fyrir byggingarlínu á götuhlið, fallið verði frá kröfu um aukna salarhæð á jarðhæðum, svalagangar að götum mega vera 50% að heildarlengd byggingarreits, leyfilegt verði að fækka bílastæðum með samkomulagi um deilibíla, stærðarviðmiðum íbúa breytt, aðalinngangur verður úr sameiginlegum miðgarði, heimilt verði að hafa opin stigahús ef brunahönnun leyfir og fallið verður frá kröfu um inndregna efstu hæð, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 3. febrúar 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228388 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131061