Fjölbýlishús
Súðarvogur 11
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 805
22. janúar, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum, einangrað og klætt að utan, á bílakjallara sem er sameiginlegur húsi nr. 9 á lóð nr. 11 við Súðarvog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stærð, A-rými: 2.376,3 ferm., 7.881 ferm. B-rými: 34,7 ferm. Samtals: 2.411 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.