Endurnýjun glugga, svalir, tröppur, klæðning
Bergstaðastræti 50B
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 811
5. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að síkka tvö gluggaop og gera svalahurðir, gera svalir á norðurhlið, nýjar tröppur á suðurhlið, færa alla glugga í upprunalegt horf og klæða með timbri, íbúðarhús á lóð nr. 50B við Bergstaðastræti. Erindi var grenndarkynnt frá 3. febrúar 2021 til og með 3. mars 2021. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 44.8 ferm., 91,2 rúmm. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26. október 2020, umsögn Minjastofnunar dags. 15. desember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. desember 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. desember 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. desember 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Landnúmer: 102172 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007067