breyting á deiliskipulagi
Bergþórugata 18
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn a2f arkitekta ehf. dags. 23. apríl 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 18 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst að byggingarreitur er færður til vesturs ásamt því að bætt er við heimild í skilmála að útitröppur megi fara út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf. dags. 15. apríl 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. maí 2021 til og með 23. júní 2021. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Jóhanna Margrét Jónsdóttir dags. 22. júní 2021 og Sigurjón Ernir Kárason og Sonja Guðlaugsdóttir dags. 23. júní 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. júní 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.