breyting á deiliskipulagi
Bergþórugata 18
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 19. mars 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með þremur íbúðum úr forsteyptum samlokueiningum á lóð nr. 18 við Bergþórugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021.
Erindi fylgir brunahönnun frá Örugg, verkfræðistofa dags. 12. janúar 2021. Stærð, A-rými: 240,2 ferm., 731,9 rúmm. Stærð B-rými: 7,1 ferm. Samtals: 247,3 ferm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. mars 2021, samþykkt.