breyting á deiliskipulagi
Bergþórugata 18
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2020 var lögð fram fyrirspurn Landslagna ehf. dags. 2. desember 2020 um byggingu fjölbýlishúss á lóð nr. 18 við Bergþórugötu á tveimur hæðum með þremur íbúðum, samkvæmt uppdr. Arkþings/Nordic ehf. dags. 27. nóvember 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021 samþykkt.