Breytingar kjallara - garðskáli 1.hæð
Kleifarvegur 12
Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 889
20. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. október 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta kjallara, þ.e. baðherbergi stækkað, reistur nýr garðskáli við suðvesturhorn íbúðar og komið fyrir nýrri hurð á útvegg að garðskála í húsi á lóð nr. 12 við Kleifarveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagfulltrúa dags. 18. október 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2022 samþykkt.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104762 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013182