Svalalokun, pallur, þakgluggar o.fl.
Akurgerði 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 798
20. nóvember, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að færa og stækka kvisti og setja svalalokanir á svalir í risi til suðurs, bæta við þakgluggum á norðurþekju, setja nýtt þak og skyggni yfir anddyri og kjallaratröppur, síkka glugga úr borðstofu og gera þar þrefalda hurð út á nýjan sólpall og tröppur af honum niður í garð auk smávægilegra breytinga á innra skipulagi í risi í sambýlishúsi á lóð nr. 15 við Akurgerði.
Erindi fylgir samþykki eigenda húss nr. 17 á afrit af uppdrætti dags. 5. nóvember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2020. Stækkun 0.8 ferm., 2.2 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Akurgerði 13, 19, 21 og 23.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006409