Svalalokun, pallur, þakgluggar o.fl.
Akurgerði 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. nóvember 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að færa og stækka kvisti og setja svalalokanir á svalir í risi til suðurs, bæta við þakgluggum á norðurþekju, setja nýtt þak og skyggni yfir anddyri og kjallaratröppur, síkka glugga úr borðstofu og gera þar þrefalda hurð út á nýjan sólpall og tröppur af honum niður í garð auk smávægilegra breytinga á innra skipulagi í risi í sambýlishúsi á lóð nr. 15 við Akurgerði. Erindi var grenndarkynnt frá 2. desember 2020 til og með 31. desember 2020. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki eigenda húss nr. 17 á afrit af uppdrætti dags. 5. nóvember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2020. Stækkun 0.8 ferm., 2.2 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006409