Rífa núv.bílskúr - og reisa annan
Úthlíð 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 828
9. júlí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. júlí 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að endurbyggja og stækka bílskúr, mhl.03, sem tilheyrir íbúð 0201 í íbúðarhúsi á lóð nr. 10 við Úthlíð.
Stækkun: 5,8 ferm., 28,4 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.270.2 dags. í ágúst 1948, samþykki meðeigenda í húsi dags í júní 2021 og samþykki eigenda bílskúrs á aðliggjandi lóð nr. 12 dags í maí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Úthlíð 12 og Bólstaðarhlíð 9 og 11.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103582 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025276