breyting á deiliskipulagi
Hraunbær 143
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 876
7. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. maí 2022 var lögð fram fyrirspurn a2f arkitekta ehf. dags. 6. maí 2022 ásamt bréfi dags. 6. maí 2022 um breytingu á skilmálum deiliskipulags Hraunbæjar-Bæjarháls vegna lóðarinnar nr. 143 við Hraunbæ sem felst í að heimila léttbyggð skýli fyrir hjól og/eða sorp á lóð utan byggingarreits. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.

110 Reykjavík
Landnúmer: 227325 → skrá.is
Hnitnúmer: 10127645