breyting á deiliskipulagi
Hraunbær 143
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja þrjú fjölbýlishús með samtals 58 íbúðum, mhl.01, 4-5 hæða auk kjallara, með 31 íbúðum, mhl.02, 2ja hæða með 4 íbúðum og mhl.03, 3-4 hæða auk kjallara, með 23 íbúðum, auk sorpskýlis, mhl.04, á lóð nr. 143 við Hraunbæ. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021.
Stærðir: Mhl.01: 3.617.0 ferm., 11.256.5 rúmm. Mhl.02: 682.6 ferm., 2.246.4 rúmm. Mhl.03: 2.220.0 ferm., 6.915.5 rúmm. Mhl.04: 20.0 ferm., 59.2 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 4.341.2 dags. 9. maí 2019, hæðablað 4.341.2-B5 dags. 28. október 2020 og varmatapsútreikningar dags. 16. janúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2021. Gjald: 11.200 kr.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. mars 2021, samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 227325 → skrá.is
Hnitnúmer: 10127645