Viðbygging, þaksvalir o.fl.
Laufásvegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að stækka anddyrisviðbyggingu, byggja einnar hæðar viðbyggingu garðmegin, hækka þak og breyta kvistum, gera þaksvalir á báðum viðbyggingum, endureinangra hús að innan og breyta innra skipulagi og einangra og klæða skúr að utan og færa innkeyrslu/bílastæði suður fyrir hús á lóð nr. 50 við Laufásveg.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020, bréf hönnuðar dags. 24. nóvember 2020, samþykki næstu nágranna áritað á skissur, umsögn Minjastofnunar dags. 3. nóvember 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. desember 2020. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. desember 2020, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. desember 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. desember 2020. Stækkun: 80 ferm., 241,8 rúmm.
Samtals á lóð eftir stækkun: 250,5 ferm., 750,7 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 49, 51 og 53-55, Laufásvegi 48, 48A, 52 og 54, Fjólugötu 19A og 19B og Njarðargötu 7 og 9.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102193 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015925