breyting á deiliskipulagi
Iðunnarbrunnur 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 892
10. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Úti og inni sf. dags. 4. ágúst 2022, ásamt minnisblaði Úti og inni sf., dags. 4. ágúst 2022, um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 15 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni sem lögð er til felst að heilmilt verði að gera kjallara undir hluta hússins og að inngangur að efri hæð verði um opna yfirbyggða tröppu utanhúss, samkvæmt uppdr. Úti og inni sf. dags. 14. júlí 2022. Við breytinguna hækkar byggingarmagn lóðar og nýtingarhlutfall eykst. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. október 2022 til og með 8. nóvember 2022. Athugasemdapóstur barst frá Veitum ohf. dags. 26. október 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

113 Reykjavík
Landnúmer: 206074 → skrá.is
Hnitnúmer: 10079501