(fsp) breyting á deiliskipulagi
Skektuvogur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2020 var lögð fram fyrirspurn T.ark Arkitekta ehf. dags. 20. apríl 2020 ásamt bréfi Sveins S. Hannessonar f.h. Skektunnar ehf. dags. 15. apríl 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 2 vegna lóðarinnar nr. 1 við Skektuvog sem felst í breytingu á notkun lóðarinnar úr atvinnuhúsnæði í þjónustu- og íbúðarhúsnæði ásamt rýmkun á byggingarheimildum lóðarinnar, samkvæmt tillöguhefti T.ark Arkitekta ehf. dags. í febrúar 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2020 samþykkt.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105599 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021922