breyting á deiliskipulagi
Urðarstígur 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 878
20. júlí, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2022 var lögð fram umsókn Þóris Jónssonar Hraundals dags. 12. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Urðarstígsreits, reitur 1.186, vegna lóðarinnar nr. 4 við Vatnsstíg. Í breytingunni að gerður er nýr byggingarreitur fyrir viðbyggingu sunnan hússins, samkvæmt uppdr. teiknistofunnar Óðinstorgi dags. í janúar 2022. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar. Umsækjandi var beðin um að hafa samband við embætti skipulagsfulltrúa og er erindi nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Urðarstíg 2, 3, 6 og 6A, Baldursgötu 8 og Berstaðastræti 51.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021

101 Reykjavík
Landnúmer: 102213 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025225