breyting á deiliskipulagi
Urðarstígur 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 845
15. nóvember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2021 var lögð fram fyrirspurn Þóris Jónssonar Hraundals og Ragnheiðar Kristinsdóttur dags. 11. október 2021 um stækkun hússins á lóð nr. 4 við Urðarstíg, samkvæmt uppdráttum Teiknistofunnar Óðinstorgi dags. í október 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2021.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2021 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102213 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025225