breyting á deiliskipulagi
Barónsstígur 21
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 843
28. október, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2020 var lögð fram umsókn Gísla Sæmundssonar dags. 15. desember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.3 vegna lóðarinnar nr. 21 við Barónsstíg. Í breytingunni felst að hækka þak/rishæð hússins og setja kvisti við austur- og vesturhlið hússins. Setja inndregnar svalir að götuhlið við Barónsstíg og léttar svalir á suðurhlið hússins og framlengja tröppur stigahússins upp að rishæð, samkvæmt uppdr. Arkteikn slf. dags. 27. október 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Barónsstíg 16, 18, 19 og 23.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101663 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006825