breyting á deiliskipulagi
Týsgata 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 848
3. desember, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Skúla Rúnars Jónssonar dags. 12. september 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðar nr. 6 við Týsgötu. Í breytingunni felst að núverandi geymsla á lóð verður rifin og nýr byggingarreitur fyrir geymslur staðsettur í norðvestur horni lóðar. Heimilt verði að byggja einnar hæðar byggingu innan byggingarreits ásamt því að nýr byggingarreitur verður staðsettur við norðurhlið húss vegna stiga utanhúss sem veitir aðgengi upp á 2. hæð. Jafnframt verður heimilt að gera léttbyggðar svalir götumegin á 2. hæð (flóttaleið), samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 10. ágúst 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 29. október 2021 til og með 26. nóvember 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Minjastofnun Íslands dags. 11. nóvember 2021.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101735 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024513