(fsp) breyting á deiliskipulagi
Krókháls 7A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 26. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7A við Krókháls. Í breytingunni felst að hæðarkóti byggingar er lækkaður til samræmis við Hestháls 14, byggingarreitur 1. hæðar er stækkaður til vesturs og austurs ásamt því að lengjast fjóra metra til suðurs, byggingarreitur 2. og 3. hæðar lengist til vesturs, nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0.7 í 0.9, aðgengi að 1. hæð verður frá Hesthálsi, aðgengi að 2. og 3. hæð verður frá Krókhálsi o.fl. samkvæmt uppdr. K.J. ARK ehf. dags. 24. mars 2020 lagf. 17. ágúst 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. júlí 2020 til og með 4. ágúst 2020. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Veitna dags. 15. júlí 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 og er nú lagt fram að nýju ásamtumsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2020 sbr. a. lið 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr.1020/2019.

110 Reykjavík
Landnúmer: 223593 → skrá.is
Hnitnúmer: 10115524