Breyta og hækka mæni og útveggi
Bárugata 14
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 804
15. janúar, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta og hækka mæni og útveggi á þakrými þannig að fáist portbyggð hæð í risi í húsi á lóð nr. 14 við Bárugötu, samkvæmt uppdr. Stáss arkitekta ehf.dags. 30. september 2020. Einnig eru lagðir fram eftirfarandi uppdr. Stáss arkitekta ehf.; götumynd og útlit húss ódags. og skuggavarp ódags.
Stækkun: 36.3 ferm., 181.9 rúmm. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. október 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. nóvember 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bárugötu nr. 12, 13, 15 og 16 og Ránargötu 11, 13 og 15.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.