Breyta og hækka mæni og útveggi
Bárugata 14
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 780
3. júlí, 2020
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Stáss Design ehf. dags. 21. janúar 2020 um að bæta við portbyggðri rishæð við húsið á lóð nr. 14 við Bárugötu, samkvæmt uppdr. Stáss Design ehf. ódags. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 1. apríl 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.