framkvæmdaleyfi
Hraunbær 153-163
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 844
5. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2021 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 20. október 2021 um framkvæmdaleyfi vegna yfirborðsfrágangs að Hraunbæ 153-163 sem felst m.a. í því að jarðvegsskipta og jafna undir gangstéttar og stíga, uppsetningu ljósastólpa, steypa kantsteina, aðlaga brunna og spindla, helluleggja, steypa gangstéttar, malbika og þökuleggja. Einnig er lagt fram teikningasett dags. í september 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2021.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2021. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.