Fjölbýlishús
Vitastígur 9A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 700
5. október, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 25. september 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.0, Landsbankareits, vegna lóðanna nr. 9 og 9A við Vitastíg og 67A við Laugaveg. Í breytingunni felst að heimilt er niðurrif síðari tíma viðbyggingar við húsið á lóð nr. 9 við Vitastíg og byggja við húsið til austurs ásamt svölum, heimilt er að rífa geymsluhúsnæði á lóð nr. 9A við Vitastíg og heimilt er niðurrif núverandi hús á lóð nr. 67A við Laugaveg og endurbygging þess, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 25. september 2018.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 65 og 67, Vitastíg 7 og Hverfisgötu 84, 86, 86A og 92.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.