Fjölbýlishús
Vitastígur 9A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 870
31. maí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 8. desember 2021 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.0 vegna lóðanna nr. 9 og 9A við Vitastíg. Í breytingunni felst niðurrif húsanna og enduruppbygging ásamt hækkun á nýtingarhlutfalli og byggingarmagni lóðanna, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 1. desember 2021, br. 25. maí 2022. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. október 2021 og 15. nóvember 2021. Tillagan var auglýst frá 23. mars 2022 til og með 11. maí 2022. Athugasemd barst frá Minjastofnun Íslands í umsögn dags. 28. mars 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2022 og er nú lagt fram að nýju ásamt svari skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2022 við athugasemd Minjastofnunar Íslands.
Svar

Samþykkt með vísan til svars skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2022 sbr. a. lið 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.