Fjölbýlishús
Vitastígur 9A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 856
11. febrúar, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. desember 2021 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 8. desember 2021 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.0 vegna lóðanna nr. 9 og 9A við Vitastíg. Í breytingunni felst niðurrif húsanna og enduruppbygging ásamt hækkun á nýtingarhlutfalli og byggingarmagni lóðanna, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 1. desember 2021. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. október 2021 og 15. nóvember 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.