breyting á deiliskipulagi
Langholtsvegur 169
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 882
1. september, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. ágúst 2022 var lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 6. júlí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 169 við Langholtsveg (hús nr. 169 og 169A við Langholtsveg). Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar, samkvæmt uppdr. KRark dags. 5. júlí 2022. Umsækjandi var beðinn um að hafa samband við embættið og er erindi nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Langholtvegi 167, 167a, 171, 171a og Eikjuvogi 10 og 12, þegar uppfærðir uppdrættir berast embætti skipulagsfulltrúa.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr. og 12. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105690 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015835