Breytingar - lóðarfrágangur, gluggar, hurðir o.fl. sbr. BN055624
Lambhagavegur 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055624 þannig að innra skipulagi, gluggum og hurðum er breytt, til að byggja nýtt milliloft, koma fyrir skilti á vesturhlið, bæta við innkeyrslu á vesturhluta lóðar, koma fyrir skábraut að innkeyrsluhurðum, færa austur innkeyrslu, í og við hús á lóð nr. 7 við Lambhagaveg.
Erindi fylgir umsögn brunahönnuðar dags. 9. mars 2021. Milliloft, 0202: 141,7 ferm. Gjald kr. 12.100
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

113 Reykjavík
Landnúmer: 211677 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097856