Breytingar - lóðarfrágangur, gluggar, hurðir o.fl. sbr. BN055624
Lambhagavegur 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju erindi Kristins Ragnarssonar dags. 7. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar-Halla, atvinnusvæði, vegna lóðarinnar nr. 7 við Lambhagaveg. Í breytingunni felst að stækka byggingareit á 1. hæð/jarðhæð um 10 metra til austurs allt að lóðarmörkum og stækkun um 10 metra á norður- og suðurhlið. Við þetta hækkar nýtingarhlutfall lóðar, samkvæmt uppdr. KRark dags. 12. júní 2018 br. 10. apríl 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. febrúar 2019 til og með 25. mars 2019. Eftirtaldir aðilar sendur athugasemdir: Veitur ohf. dags. 27. febrúar 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. mars 2019 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

113 Reykjavík
Landnúmer: 211677 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097856