Gera upp og byggja við Drafnarstíg
Drafnarstígur 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 853
21. janúar, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. janúar 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til austurs ásamt því að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Drafnarstíg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun: 70,2 ferm., 224,5 rúmm. Eftir stækkun: 215,4 ferm., 563 rúmm. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 27. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ránargötu 45, Bræðraborgarstígur 5, 10 og 10a.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100341 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009204