breyting á deiliskipulagi
Hrísateigur 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 848
3. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir nýju vindfangi, gera þakglugga og svalir á rishæð og 2. hæð, með stiga niður í garð, á suðausturgafli auk þess sem innra skipulagi hæða er breytt í húsi og bílskúr 0102 er breytt í vinnustofu/geymslu á lóð nr. 18 við Hrísateig. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021.
Stækkun vegna vindfangs er: 2,8 ferm., 11,0 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021 samþykkt.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104085 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020713