breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 888
13. október, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Maison ehf. dags. 6. október 2021 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 1 við Seljaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að byggja tveggja hæða hús með þremur smáíbúðum og útisvæðum á þaki ásamt því að setja eitt yfirbyggt bílastæði á norðurhluta lóðar við Nýlendugötu. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar og byggingarmagn eykst, samkvæmt deiliskipulaguppdr. Studio Granda dags. 20. ágúst 2021, breytt 21. júní 2022. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdr. dags. 20. ágúst 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. júlí 2022 til og með 22. ágúst 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Hildur Eir Jónsdóttir, Jakob Anderssen, Ásthildur Kristjánsdóttir, Guðrún Olsen, Gaukur Úlfarsson, Magnús Benediktsson og Unnur Hjaltadóttir dags. 14. ágúst 2022. Einnig er lögð fram ábending Veitna dags. 4. ágúst 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2022 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100142 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114056