breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 874
23. júní, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
486463
486736 ›
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. janúar 2022 var lögð fram umsókn Maison ehf. dags. 6. október 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 1 við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja tveggja hæða hús með þremur smáíbúðum og útisvæðum á þaki ásamt því að setja tvö yfirbyggð bílastæði á norðurhluta lóðar við Nýlendugötu. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar og byggingarmagn eykst, samkvæmt deiliskipulaguppdr. Studio Granda dags. 20. ágúst 2021, breytt 21. júní 2022. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdr. dags. 20. ágúst 2021. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti skipulagsfulltrúa til Dagmarar Þorsteinsdóttur, dags. 2. júní 2022.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Seljavegi 2, Vesturgata 54, 54a, 56,58 og Nýlendugötu 34, 45.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100142 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114056