breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Maison ehf. dags. 6. október 2021 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 1 við Seljaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að byggja tveggja hæða hús með þremur smáíbúðum og útisvæðum á þaki ásamt því að setja tvö yfirbyggð bílastæði á norðurhluta lóðar við Nýlendugötu. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar og byggingarmagn eykst, samkvæmt deiliskipulaguppdr. Studio Granda dags. 20. ágúst 2021, breytt 21. júní 2022. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdr. dags. 20. ágúst 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. júlí 2022 til og með 22. ágúst 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Hildur Eir Jónsdóttir, Jakob Anderssen, Ásthildur Kristjánsdóttir, Guðrún Olsen, Gaukur Úlfarsson, Magnús Benediktsson og Unnur Hjaltadóttir dags. 14. ágúst 2022. Einnig er lögð fram ábending Veitna dags. 4. ágúst 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100142 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114056