nýtt deiliskipulag
Heklureitur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 882
1. september, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. ágúst 2022 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 21. júlí 2022 þar sem fram kemur að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis og forms deiliskipulagsins þar sem stofnunin telur ekki ljóst hvort og hvernig tillagan samræmist ákvæðum aðalskipulags m.a. um byggingarmagn, þéttleika og gæði byggðar ásamt fleiri atriðum sem þarf að skýra og/eða gera nánar grein fyrir. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. ágúst 2022, samþykkt.