nýtt deiliskipulag
Heklureitur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 810
26. febrúar, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2021 voru lagðir fram uppdrættir Yrki arkitekta ehf. dags. 1. febrúar 2021. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-176, þar sem gert er ráð fyrir að lóðin Laugavegur 176 verði nýtt undir gististarfsemi og verslun en aðrar lóðir á skipulagssvæðinu eru skilgreindar sem lóðir án heimilda. Forsendur varðandi frekar uppbyggingu á reitnum hafa breyst á þann veg að ekki náðust samningar við lóðarhafa og eigendur fasteigna á lóðum við Laugaveg 168-174. Í ljósi þess hafa orðið umtalsverðar breytingar á skipulagstillögunni sem nú er lögð fram frá skipulagslýsingu og markmiðum þess að lútandi. Á lóðinni við Laugaveg 176 verður heimilt að rífa bakhús og byggja við núverandi byggingar, sjá nánar tillögu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.