breyting á deiliskipulagi
Reynimelur 66
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 676
13. apríl, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Arkís arkitekta ehf. f.h. Rangárbakka ehf. mótt. 16. október 2017 ásamt bréfi dags. 16. október 2017 um breytingu á deiliskipulagi Mela vegna lóðarinnar nr. 66 við Reynimel sem felst breyting á m.a. afmörkun byggingarreits og fjölgun íbúða, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 12. október 2017. Einnig eru lagðar fram skýringarmyndir Arkís arkitekta ehf. 13. október 2017. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. mars 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. apríl 2018.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.13. apríl 2018.

Landnúmer: 106030 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013515