breyting á deiliskipulagi
Laugavegur 143 og 145
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 651
29. september, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2017 var lögð fram umsókn Helga Mars Hallgrímssonar, mótt. 23. júní 2017, um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar 143 og 145 við Laugaveg. Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að færa húsin nær upphaflegri hönnun húsanna og um leið að fjölga íbúðum í húsunum. Tillagan gengur út á að rífa núverandi rishæðir, hækka húsin um eina hæð og byggja nýja rishæð þar ofan á ásamt því að reisa nýja viðbyggingu við Laugaveg 145, skv. deiliskipulagsuppdrætti og skuggavarpi Arkþings ehf., dags. 29. september 2017. Einnig er lagður fram samningur eigenda vegna umsóknar um deiliskipulagsbreytingu, dags. 1. október 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102861 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018256