breyting á skilmálum deiliskipulags
Hverfisgata 90
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 805
22. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. desember 2020 var lögð fram fyrirspurn Rauðsvíkur ehf. dags. 27. nóvember 2020 ásamt bréfi dags. 24. nóvember 2020 um niðurrif hússins nr. 90 á lóð nr. 88 við Hverfisgötu. Einnig er lagt fram ástandsmat verkfræðistofu Þráins og Benedikts dags. 13. nóvember 2020. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. desember 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. janúar 2021, samþykkt. Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101559 → skrá.is
Hnitnúmer: 10129295